Frygtindgydende

stadiv staket kasket

06.02.2008 21:20:46 / toffa-dk

Sambandslaust

Við erum á leiðinni til fortíðar í þessum íþróttarlýðháskóla hér í Gerlev. Við eigum að læra að komast án síma og helst internets. Eg bætti hertækniaðferð við að ná þessari góðu windows 95 tölvu. Inniheldur internetid og kemst madur nær umheiminum. U.þ.b 100 nemendur berjast við að ná þessari einu tæknivæddu tölvu. Folk bíður í leyni bak við hurð, undir borði eða jafnvel í pappakassa, eitt til þess að fá tækifæri að ná sambani við adrar manneskjur gegnum netið. Þó voru sumir sniðugari en aðrir og tóku með sér internets snúrur sem voru í tísku 1997. Þá stingur maður þeim við tölvunna og inní sérstakan hólk sem er á veggnum. Þessir hólkar eru einnig of fáir, aðeins þrír ef ég tel rétt. 

Er Danmörk á undanhaldi eða bara ihaldssöm? Ég hélt að hér fyrirfindust þeir bestu tækniháskólar...

Ég hef þetta ekki lengra, ég sé einn Danann vera að undirbúar árás á mig, en einnig er annar tilbúinn med heftara að vopni.

Tækni Toffa kveður

p.s eg er kominn med danskt numer svo ad ég ná sambandi.. það er: 0045 42971019


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 15:38:16 / toffa-dk

Crazy Christmas Cabaret

Seinustu dagar hafa verið voðalega, virkilega, varnfænislegaviðureignarlega,viðurstyggilega,venjulega, vegfenglega og veglega  viðburðarríkir. Um daginn í skólanum var herbergjakeppni. Þ.e.a.s keppni í ýmsum herbergjastílum. Flokkarnir voru t.d: skrítnasta herbergið, bad boy herbergi, cosy herbergi, og erotískasta herbergið. Ég og Saga tókum okkur til  og brainstorumðum. Eftir mikið hugarflug og svita komumst við að því að það væri best að slá á erotískan stíl. Svæsnar kamasutra myndir, súrrealískar nektarmyndir og ýmist annað listfenglegt prýddi veggi okkar. Við fengum síðan íslensku strákana til að liggja í rúmunum okkar, olíuborna og bundna. Latexgallir, handjárn og svipur voru einnig partur af tilburðinum. Þegar herbergja keppninn byrjaði og dómararnir og allir nemendurnir löbbuðu um herbergin, helltum við okkur í erotískan karakter. Í bakgrunn mátti sjá myndbandið “erotica” með Madonnu. Þetta var heldur betur svæsið. Núna halda krakkarnir að einhverjir klámsjúklingar búi á Íslandi. Þetta endaði með því að við unnum erotískasta herbergið. Við fengum heiðursdiploma afhenda, sem hangir núna á hurðinni okkar.

(Það á ekki við hæfi að láta erotískumyndirnar hér á bloggið;) 

Tásuneglurnar á mér eru í hakki. Þær eru alltaf eitthvað að beyglast, rifna, kremjast, brotna eða lenda í einhverju slysi. Ég skammast mín ekki neitt smá fyrir þær. Passa alltaf að beygla tærnar ef ég sé á tásunum og einhver gæti hugsanlega séð þær. Vinstri stóru tásu nögl er sérstaklega slæm. Hún er hálf vaxin og krumpuð þar sem hún lenti í slysi fyrr í sumar. Hún hefur ekkert lagast síðan, versnað ef eitthvað er. Ég er einnig dugleg að kroppa og klippa í hana, sem bætir líklega gráu ofan á svart. Kannski að ég splæsi bara á gervitásuneglur, það er aldrei að vita. 

Í seinustu viku var allur skólinn sendur til Kaupmannahafnar í menningarferð. Um kvöldið áttum við að fara á rosa fyndið jólaleikrit sem er haldið ár hvert, allir Danirnir elska það. Ég beið rosa spennt að sjá “the crazy christmas cabaret” eins og það er kallað á ensku. Við fengum öll sætisnumer og eg fékk fáranlegasta sæti sem ætti ekki að vera sæti. Það var risastór súla beint fyrir framan mig. Ég varð frekar gröm og  hlógu margir að óförum mínum. Ég þurfti að halla mér upp að salsa-Kate allan tímann til að sjá eitthvað. Síðan byrjaði leikritið, og ég beið og beið og aldrei hlóg ég. Flestir í kringum mig veltust um að hlátri. Mér fannst þetta ekkert fyndið. Það var rosa mikið um  ofnotaðaðan aulahúmor, plús að síðan voru djókinn skýrð út ef einhver tregur hefði ekki fattað. “Hvað sagði tómaturinn við hinn tómatinn eftir að bill hafði keyrt á hann,,, komdu þarna tómatsósann þin” brandararnir voru einmitt á þessa vegu. Hahaha búmmbúmm trallalllala. Ég hafði keypti mér bland í poka fyrr um daginn og ætlaði að stinga nokkrum molum upp í mig. Það heyrðust örfá desibil í bréfpokanum, ég skil ekki ef einhver hefði getað heyrt það. Allavega litu nokkrir við með reiðisvip. Úfff.. ég seig niður i sætið en gat samt ekki staðist nammifreistinguna. Það tók mig c.a 5mín. að ná einum mola, og þar sem mér fannst leikritið leiðinlegt og ég kominn með hálsríg á að halla mér til hliðar, fór öll einbeitingin mín í að ná mér eins hljóðlaust í nammi.

 Danska

orð dagsins í dag er: “prygl” sem þýðir “klunnalegur sláni”  

Takk fyrir Þórfríður  

p.s músin okkar er farin, hún var veidd í dauðagildru   


» 10 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 18:44:35 / toffa-dk

New York,, með salsa-Kate ívafi...

  Nú er komin tími á hörkublogg, þar sem ég er ekki búin að vera við seinustu viku. Ég var nefnilega í landi stórra tækifæra og brjálæðis. Ameríka, nánar tiltekið New York. Við danshópurinn áttum að undirbúa okkur undir svaka menntun í dansi. Einnig misstum við okkur í búðunum, um að gera, enda er dollarinn lágur. Svo má ekki gleyma öllum þeim týpsiku túrista stöðum sem við skruppum á. Menntunin fór fram á Broadway Dance Center(BDC). Ansi glæsileg stöð. Við prófuðum m.a leikhúsardans, house, jazz ballet, ballet, jazz funk ofl. Ég taldi okkur stelpurnar nokkuð ágætar í dansi, en nei maður, við vorum yfirleitt með þeim verstu! Hinir nemendurnir ,sem nánast eingöngu voru af asískum, suðuramerískum eða afrískum uppruna, voru ofur góð. Með svaka bling bling, með tískuna á hreinu og með þessar “aint messing with me niggah” hreyfingar. Jáhá “fake it until you make it.”Allir að bíða eftir að verða uppgötvaðir. Í hiphopp, funk og house tímunum var alltaf ofur dans sem við áttum að læra. Díses maður, kennarinn sýndi þetta geðveikt hratt og allir búnir að ná þessu nema við. Svo var dansað svo hratt, á trilljón. Við líktumst einhverjum öpum á dansgólfinu miðað við hina “bíða eftir að verða uppgötvaðir” dansaranna. Ekki vissi ég að það væri svona mikil dansmenning hérna í NY. Allir í buisnessnum....

Hvert sem litið er hérna í New York, serðu búðir, matvörubúðir, hárgreiðslustofur, sjoppur, fatabúðir, markaði og allt sem þér dettur í hug. Allt sem ímyndaraflið hleypur með mann. Alls staðar freistingar: kaupa, selja, telja, smjaðra, smjúga, sjúga, beita brögðum og græða gull. Enginn furða að ameríkanar þjáist af offitu, græðgi, eignast auð, frægð og frama. Verður að hugsa stórt til að vera stór! Annars var ég alveg að fíla mig þarna. Svo margt í boði.

Ég skrítin í subway,,, ég og Gitte vorum í rauninni að ná mynd af konunni til að teikna...

 

Aftur í subway að reyna ná mynd af annari konu...rosa sniðugt..

 

 NYC subway,,, bregst ekki..

 

Gitte að borða í subway,, já það gerist margt í NYC underground subway, náði samt ekki mynd af konunni við hliðiná henni,, myndavélin mín er eitthvað þroskaheft..

 

Gamalt fólk að læra star-wars sverðfimi í central park,, frekar súrrealíkst

 

Kona og hundur í central park

 

Ég á labbi í central park

 

Getið úr hvaða ætvintýri þessi stytta er og eftir hvern,, vægleg verðlaun í boði Toffu

 

 

 

Gitte og ég í tröppum að reyna vera sniðugar...

 

Maður góður við hundinn sinn í Central park

 

Já maður rekst á margt í central park

 

Töff hvernig borgin rís að aftan frá garðinum

Dúfur á varðbergi

 

Fólk í flýti,, takið eftir manninum á miðri mynd..

 

Skólastjórinn okkar var leiðsögumaður okkar í ferðinni..

 

Brooklyn Bridge og Toffa nebbi

 

Krikjugarðurinn þar sem world trade center var við hliðiná!!

 

Karlinn sem hefur spilað  "mazing grace" á hverjum degi síðan World trade center hrundi.. gaman!

Ég tók þá áskorun að vera í "safna nöglum" keppni. Mínar eru til vinstri.

 

Keppinautar...

 

Ég náði að bjarga byggingunni áður en hún hrundi,, hún varð næstum dúfu að bana...

 

Lögreglan mætti á staðinn og læti,, þarna er dúfan (lengst til hægri) í sjokki eftir áfallið..

 

Hvar er Þórfríður?

Lítil stelpa að dansa...

 

Svala gengið.. Þetta er eðal gleraugu, maður sér heiminn í nýju ljósi...

 

NYC

 

 

 

Fórum á dragdrottingar veitingarstað..

Þeir voru rosalega skotnir í skólastjóranum okkar.!!

 

Þessi var svakalegur,, líklegast búin að of kóka sig...

 

Þessi var rosalegur...

 

 

Ég verð að segja ykkur frá henni Kate, eða eins og ég vil kalla hana: Salsa-Kate! Hún er pólsk. Hún er dansari af Guð náð, en það er nú reyndar kaldhæðni. Frekar mætti segja að hún væri dansari af eigin náð! Því hún lifir í þeim heimi að hún sé besti dansarinn. Hún fer ávalt fremst og lætur upp “sexy stútinn” þegar hún dansar. Síðan horfir hún á sig með aðdáendaraugum í spegilinn. Í öllum dansi sem við lærum reynir hún að troða sér fremst og fer síðan að leiðrétta hina og þessa, mörgum til mikilla ama! Málið með Salsa-Kate er í hreinskilni satt að hún er hræðilegur dansari! Hún miskilur allar hreyfingar sem okkur er kennt og bætir síðan auka hreyfingu við sem ég kýs að kalla “salsa-kate hreyfing”. Hún er algjöralega taktlaus. Þetta er alveg rosalegt, maður fær kjánahroll. Dans kennararnir verða meira segja hálf vandræðalegir. Ekki nóg með það, þá tróð hún sér einnig fremst í danstímunum í New York!! Úfff það var frekar vandræðalegt, þar sem við vorum aðeins gestadanshópur þarna! Hún væri ein af þeim sem færi í þáttinn “so you think you can dance” og haldið því fram að hún væri “pró” sem væri búin að stunda þetta frá barnsaldri! Já það er víst svona fólk til. Já, hún salsa-Kate er alveg einstök.

 Í öllum teitunum hérna í skólanum, er Salsa-Kate alveg með fötin á hreinu og málinguna. Flegnir bolir, ofur stutt pils, háhælaðir bandaskór og skær blár eða fjólublár augnskuggi. Já hún kann þetta. Hún tekur einnig rosa mikið af sjálfsmyndum af sér, eða það gerði hún meiri hluta New York ferðarinnar. Hún átti sér margar útgáfur af “stút á munnin/vera sexy” pósur. Ég hélt fyrst að hún væri að fíflast,,, nei þetta var fúlasta alvara. Einnig þegar við danshopurinn vorum að labba um borgina bað hún einhverja á c.a mínótna fresti taka mynd af sér. Hún fór  þá úr kápunni og stillti sér “kynþokkafullslega” upp. “Can you make me a picture” var algengasta setningin sem ég heyrði hana segja, með hátíðnis  nefmæltri rödd með sterkum pólsku hreim. Þrátt fyrir vill Salsa-Kate öllum vel og voða almennileg við alla. Hún lifir víst í eigin heimi.

Salsa-Kate i NYC Salsa Kate og kærasti hennar- Bolek hinn bældi,, það er blogg neðar um hann...

(Þið ættuð að sjá hana dansa salsa...úfff, ég ætla ekki að fara út í það.) 

 

Sumar stelpurnar fengu innblástur frá Kate

Einnig fékk ég  vott af innblæstri,, hipphopp kennarinn minn til vinstri,, hún er geðveikt flink

Kveð að sinni

Toffa 

p.s það er mús í herberginu okkar Sögu. Ég gef henni reglulega brauðmola. Rosa sæt....

 

Litið út um gluggan minn að morgni til....

» 8 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 19:59:24 / toffa-dk

Rútuferð

Margt, mikið  og skemmtilegt hefur á daga mína drifið. Í seinustu viku dreif skólinn sig alla leið til Tjekklands! Öllum nemendunum var troðið í rútur. Okkar beið 16 tíma rútuferð, takk fyrir! Mig og Unni tókst einhvern vegin að ná sætum sem voru öðruvísi en hin sætin. Þau voru sérstök. Þau voru minni en hin sætin, mér og Unni til mikilla vonbrigða og kvartanna. Lagt var af stað um kvöldið svo fólk gæti nú blundað á leiðinni. Ég og Unnur vorum ekki sáttar, hvernig áttum við að geta blundað sitjandi, þar sem ein stelling var möguleg. Svo til að bæta svörtu ofan á svart þá gátum við ekki hallað sætunum! Klukkutímarnir liðu og eftir mikið tuð og puð tókst mér að sofna!

Ég og Unnur í rútunni, kramdar.. 

 

Vaknaði við sterka sólargeislanna í morgunsárið og í svitabaði. Ég fann ekki fyrir fótunum á mér vegna nálardofa og með stingandi hálsríg. Áttum við þá tvo tíma eftir. Blasti Tjekkland þá fyrir mér. Gömul sjúskuð hús, husqvarna búðir sem selja t.d vélsagir og saumavélar, gamlir skoda bílar, reiðir skítugir kallar, og há fjöll þakin marglituðum trjám. Við áttum að dveljast á sport hóteli í fjöllunum.

Skoda bíll

 

Tjekkland

 

Tjekkneskur skógur, líklegast Sidga greni, samt ekki viss...

 

 

Ég ætlaði að fara í skónna, ég komst ekki í þá! Fæturnir á mér voru þá svona bólgnir.  Ég klemmdi tærnar fast saman, herpti munninn og tróð mér í þessa ljótu skó. Jæja,, okkur var sagt að það biði okkar matur inná hótelinu. Mmm ég fann garnirnar gaula, eg var orðin mjög svöng! Ég sá fyrir mér eitthvað gott. Gamalt og fornt hótel hlaut að hafa ljúffengan mat. Í forrétt  fengum við vatnslegna súpu með cm stórum gaulrótarsneiðum og einhverju örðu gumsi.. hmmm þetta hlaut bara vera brella fyrir rosa góðan aðalrétt. Aðalrétturinn kom síðan á borðið. Kartelfumúsarsletta, fjórir gúllasbitar og vatnsþynnt sósa. Gúllasbitarnir minntu mig á gamalt hrútakjöt. En þar sem ég er alæta skellti ég þessu í mig. Já maturinn var nú ekki uppá marga fiska. Hann var verri heldur en “Hip Opera” með R.Kelly, eins og hún Saga segir. Slysuðumst til að horfa á þetta á You-tube.

Næst tók prógrammið við. Nemendunum var skipt í 4 hópa. Minn hópur átti að fara í High rope. Þetta er sko ekki fyrir lofthrædda. Þetta eru allskonar stöðvar sem þu getur valið um. Þú hengur í varnarlínu og ert prílandi, hangandi og skríðandi 15metra uppí lofti! Ég held að ég hafi ekki verið með réttu ráði þennan dag. Ég var í hálfgerðu móki eftir svefnlausa nótt. Ég þorði sko öllu og ég sem er lofthrædd. Siðan var ein stöð sem var rosaleg. Þar átti að klifra upp á 15m háan staur, hoppa síðan þaðan í hangandi boxpúða. Ég peppaði mig upp og lét vaða, passaði mig sko að líta ekki niður. Ég ætlaði sko að sanna mig fyrir þessum Dönum að Íslendingar væru engar veimiltítur. Ég dreif í þessu og stökk strax og tognaði í öxlinni!Veit sko ekki hvernig ég fór að þessu. Týpiskt.Þetta var rosalega sárt. Ég missti takið og hékk í lausu lofti.  Ég var næstum því farin að gráta, en ég hélt í mér, ætlaði ekki að vera mér til skammar! Næstu daga gerðum við ýmislegt ævintýralegt, t.d hjóluðum uppá fjall sem var drullu erfitt, fórum til Póllands og gengum þar upp á fjall, klettaklifur, ratleik, ofl. Ég lét ekki aftra af mér þótt ég væri tognuð.. iissss og pisss....

High rope, þar sem ég tognaði í öxlinni.. er samt ekki meidd á þessari mynd.

í fjallahjólaferðinni... Maðurinn til vinstri er pólskur

Ola (prumpustelpan) skransaði of hratt af hjólinu sínu.

 

Í ratleiknum

 

Við villtumst aðeins í skóginum

 

En við vorum svo klárar á kortið...

 

Enn og aftur í rútu, en þetta er samt ekki 16 tíma rútuferðin..

 

Hulkalisous og spirtual woman.. tjekknesk

 

í skíðalyftu...í póllandi..

 

pólskt fjall...

 

pólskt grjót

 

Á landamærum Tjekklands og Póllands,, maðurinn í miðjunni er grænlenski skúnkurinn...

 

Hundurinn Sven sem fylgdi okkur...

 

Íslendingurinn, eldri nemi og fuglinn (Danir samt)

 

 

Gamalt skotskýli úr seinni heimstyrjöld

 

Malte foli...

 

MAgnús Ströllenberg tók jóladagatal með sér í nesti..

 

Mættum hollenskum fjallamanni...

 

Hulkalisous baðaði sig í ógeðslegri tjörn..

Hús í Tjekklandi..

 

Magnús Ströllenberg að kreista glasið

 

Dönsk Orgía... mjög algengt í Danmörk

 

 

 

 

 

Komum heim til Gerlev og þetta sinn fékk ég betri sæti. Um kvöldið var partý og það var guða þema. Hörkustuð!!! Ég ákvað að vera Frigg eftir langa umhugsun!

Verðandi og Frigg

Þrumuguðir...

 

 

Kveð að sinni

Þórfríður!


» 8 hafa sagt sína skoðun

09.10.2007 15:01:58 / toffa-dk

Vírus varnar veikindi..

Það er mollulegt inní þokukenndu herberginu. Sviti dropar af mér, fötin klístrast við mig. Heyri raddir og hlátrasköll úr fjarska. Heilinn hristist ákaflega við hvert tramp í stiganum. Ógerandi sársauki. Erfitt að ná andardrætti. Veit ekki hvort ég eigi að gráta eða hlægja. Hvít slykja yfir augunum, opnast bara til hálfs. Mörg tóm “maxim energy bar” umbúðir liggja á víð og dreif um herbergið. Hálfkláruð dansk Honning dós. Teskvetta á hálfu borðinu. Blautt dagblað. Óþægilegt kexmunsl kitlar í rúminu. Sængin hálf út úr sængurverinu. Það fer illa um mig. Ég er veik.

  Ég er samt ekki sú eina. Skólinn hefur þjást af miklum vírus sem ríður öllum nemendum. Þetta er sögulegt. Aldrei hafa jafn margir á þessu svæði þjást. Margar verur labba um með þrútin augu, lafandi hor og blautum hósta. Best er að koma ekki nálægt þeim, því yfirleitt verður raunin sú að þú færð fljúgandi gerla í átt að þér sem setjast að öndunarfærunum. Þessu fylgir mikill hausverkur og þreyta. Þetta var mín raun. Ég var á spjalli við eina, hún hóstar. Ó nei,, ekki var hún að taka fyrir munninn! Hóstið fór beint upp í mig. Ég fann hvernig ónæmiskerfið brast og ég varð veik. Ég vildi ekki viðurkenna þetta fyrir sjálfri mér. Hélt áfram að láta henda mér í júdó, svitna í dansi og puða úti. Ég get sjálfri mér um kennt núna, og blóta í hljóði. Fann það um leið og ég vaknaði að þetta var einkar slæmur morgun, ekki gott. 

Allur skólinn tók þátt í “Adventure race” eða ævintýrakapphlaupi. Þetta var c.a 20klst kapphlaup þar sem allskonar þrautir voru innifaldar. Við fengum kort, og okkur hent útí óvissuna. Okkur var skipt í fjögurra manna lið. Ég lenti með herra vælukjóa, herra blöðrur á fæti og ungfrú rólega. Við fengum eitt hjól og eina rúlluskauta. Herra vælukjói krafðist að vera á línuskautunum allan tíman því hann hafði illt í hnénu. Frú rólega sagðist hlaupa hægt og fékk að vera á hjólinu. Lagt var að stað 17.30. Ég og herra blöðrur á fæti hlupum fyrsta daginn. Allt gekk. Mér fannst þetta gaman, friðsæl sveitin með sætum húsum, ponyhestar og kindur. Þegar nálgast fór miðnætti, komum við að sjónum. Við áttum að synda yfir!! Við fengum plastpoka til að láta farangur okkar í. Við vorum byrjuð að skjálfa áður en komið var útí. 250metrar takk fyrir. OOOhh sjórinn var svo kaldur. Mig langaði að fara að gráta. Ég harkaði þetta af mér, ég er nú einu sinni Íslendingur. Ég synti einnig með poka frú rólega því hún var svo hrædd og herra vælukjói komin með illt í hendina :S. Kuldinn nísti að beinum,,, Mér datt í hug Kate Winslet í Titanic. Víst hún gat gert þetta þá gat ég þetta! Við komust svo heilu og höldnu yfir og farangur okkar blotnaði ekki. Mér leið bara ágætlega eftir sundið. Ágætis bað. Leið okkar lá síðan að gisti staðnum. Löbbuðum gegnum sveitina og leið mér eins og Frodo Baggins. Sváfum í fuglaskíta- og köngulóarskýli. Ég var umkringd hrotum. Vorum rekin á fætur eftir 2 tíma svefn. Morguninn var fallegur, svo friðsæll. Dalalæðan lá yfir öllu og sólin að koma upp. Mér var farið að verkja nokkuð í hnjánum. Við þurftum að fara smá spotta á malarvegi. Herra vælukjói þurfti að taka línuskautana af sér. Hann neitaði að hlaupa. Það fór alveg ískyggilega í taugarnar á mér þar sem hann var ekki búin að reyna mikið á sig. Herra blöðrur á fæti gat síðan ekki hlaupið meira, vegna blaðra á fótum. Hann og frú rólega skiptust á hjólinu, ég hljóp á meðan. Mig langaði að fara að gráta á tímabili því ég var búin á því. Í stuttu máli sagt þá komumst við loksins á leiðarenda kl 16.00. 70km að baki. Ég var gjörsamlega búin í hnjánum og öklum.. Gæti samt alveg hugsað mér að gera þetta aftur. Mjög spennandi.

 

 

Við tilbúnar í slaginn... saga er samt ekki alveg svona hávaxin,, hún er í línuskautum...

Liðið mitt... 10km að baki... 

Blöðrur á fæti lengst til vinstri, ungfrú rólega til miðju og herra vælukjó lengst til hægri.  

Saga og Ásgeir kærasti hennar... Hann kom beint úr læknisfræðinni í ævintýrakapphlaupið,, afrek!    

Fersk eftir svefninn,, sjáið hversu vel ég lít út!

Fallegur morgun, sólin að koma upp

Á hlaupum um morguninn

Dalalæða

Ein þrautastöðin þar sem við áttum að grafa holu með höndunum.. herra vælukjói var í fílu..

við að grafa holuna... karlinn(Sam) með gleraugun er ævintýrakennarinn.. allar stelpurnar eru skotnar í honum..

Stóra beltisbrúin úr fjarska...

Hálfnuð með ferðina.. takið eftir hvað ég er fersk

Ótrúlega þreytt en hress samt..

komin í mark...með brauðbollu í hendinni... takið eftir því hversu fersk eg er..

Menn voru þreyttir

Við skólann.. allir þreyttir..

 

 

 

Takk fyrirÞórfríður hin veika.

p.s ég vil minna á bloggið hennar Sögu sem er einstaklega fyndið.. þar segir hún m.a frá Sam heita kennaranum sem allar stelpurnar í skólanum eru skotnar í ;)


» 11 hafa sagt sína skoðun

04.10.2007 13:24:26 / toffa-dk

Brúðkaup

          Ég hef kannski ekki sagt ykkur frá Pétri hinum pólska? Hann er Pólverji af lífi og sál.Hann er samt ekki með yfirvaraskegg. Við fyrstu sýn virkar hann eins og þessi umburðarlyndi, kurteisi herramaður með góða siði. Hann labbar um sperrtur og heilsar þeim sem labbar framhjá. Þú mættir halda að hann væri búin að vera í hernum til margra ára. Þrátt fyrir þetta er ekki allt sem sýnist. Jú, eins og við höfum svo oft rekið okkur á segir útlitið ekki allt! Pétur er púki í mannsmynd. Hann er perri af hinni verstu gerð. Hann klípur í rassinn á öllu kvenkyns, og hlær sínum djúpraddaða perrahlátri. Ef hann er í miklu stuði verður röddin rám og óhugnaleg. Hann gerist stundum svo nærgöngull að hann fer að klípa í brjóst og sleikja. Ef þú ert heppin þá geturðu séð tippið á honum. Honum finnst svo spennandi og gaman að sýna það. Það gerist bara við leynd tækifæri, ef hann nær að króga stelpuna af. Hann kallar miðfótinn “the anaconda.”Hann er stoltur af anacondunni sinni. Sumar stelpur flissa og roðna og finnst þetta gaman, en aðrar lemja á móti. Pétur segist aðeins vera fara eftir sýnu innra eðli og að ekkert aftri af honum. Það er ekki til feimni í honum...”pffff” segir hann við því. Eflaust myndu margir strákar líta aðdáendaraugum á hann og taka hann sér til fyrirmyndar. Markmið Péturs er að sofa hjá eins mörgum stelpum og hann getur hér í skólanum. Hann segist vera svo graður. Efast ég nú um að eitthvað verði af þessum draumórum hans. Einnig hefur hann gaman af perra myndum, þ.e bláum myndum. Það versta við þetta allt saman að hann er nokkuð myndarlegur. Já, hann Pétur perri hinn pólski er margslunginn og veistu aldrei við hverju má búast af honum. Margar stelpur fara í kerfi þegar þær eiga leið framhjá honum. Ég læt ekki bugast og hef ég búið til nokkrar setningar sem eiga að koma honum úr jafnvægi.

Hér er Pétur á góðri stundu, að undirbúa perraskapinn.     

Seinasta laugardag var brúðkaup í skólanum, gervibrúðkaup. Við drógum miða og fengum hlutverk í brúðkaupinu. Ég og einn annar strákur áttum að vera par. Við áttum að gera eitthvað hnyttið úr þessu hlutverki okkar. Við ákváðum að vera frekar súr. Ég var þessi einstaklega leiðinlega týpa. Klæddi mig hræðilega og var alltaf að kvarta, tuða og skammast í manninum mínum. Ég talaði með leiðinlegri skrækri rödd í monotone. Maðurinn minn átti að vera undirgefinn og hlýða mér í einu og öllu. Við áttum tvö börn sem voru rosalega óþekk og pirrandi. Annað þeirra var með hlaupabólu. Saga lék annað barnið og missti hún sig alveg í hlutverkið. Hún át meira að segja sólblóm. Frussaði vatni á mig, orgaði og gargaði. Ég fékk eiginlega móral því ég var svo rosalega leiðinleg týpa. Ég fékk það smá á tilfinninguna að fólk yrði hrætt við mig. Það var einnig svo erftitt að komast úr karakter eftir að athöfninni var lokið. Var leiðinlega kerlingin það sem eftir var af kvöldinu…Ég var nett að fíla mig þannig.. hehe.  

Kv.

Toffa leiðinlega…

 

 

hér koma svo nokkrar myndir úr brúðkaupinu

.

Hér er Pétur í stuði að tæla margan kvennmanninn upp úr skónum. Þessi mynd er tekin úr brúðkaupinu. Pétur fékk sitt fullkomna hlutverk, en það var strippari. 

 

Saga sem óþekkt, ofvaxið ofvirkt barn.

 

 

Hér er ég og eiginmaðurinn minn.. hjónasvipurinn leynir ekki á sér.

 

 

 

Hér er öll hressingin boðsgestir og brúðkaupshjón...

 

 

Mæðgur...

 

Kristján var gamall karl...

 

Hann var gamall með hasspípu....

 

Pétur perri og framtíðarmaðurinn

 

Tangó dansarinn (við köllum hann músin, hann er samt risastór)

 

Magnús Ströllenberg sem afi..

 

 

Svala parið...

 

Fjölskyldan öll saman.... Stoltur pabbi

 

 

Þið sjáið kannski Sólblómin sem við höldum á! Þetta var brúðkaupsgjöf frá okkur Sögu. Þetta var þvílík svaðilför sem við lentum í. Gönguferðin tók 2 tíma. Í rigningu, skríðandi undir girðingar, gegnum köngulóarvefi, brenninetlur og flótta undan brjáluðum bónda. Það var út af því við stálum blómunum af sólblómarengi. Já það er margt sem leggur á sig fyrir blóm. En Saga át síðan eitt sólblómið...

Hér er Saga vel undirbúin fyrir stuldurinn...

 

 

Komnar á leiðarenda aftur í skólann, uppgefnar....

 

 

 

P.s Þeir sem vilja mega gjarnan senda mér eina línu í pósti. Mér mundi þykja ógurlega vænt um það. Það mætti gjarnan fylgja eitt súkkulaði með, þar sem ég er súkkulaði óð. ;)

Heimilisfangið er hérna við hliðiná i einum link...

 

 

 

 

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 14:54:54 / toffa-dk

Sviti

Ég held að ég sé sveittasta manneskjan hér í skólanum. Ég má ekki gera eitt hopp eða eina armbeygju þá dropar af mér svitinn. Ég verð svo sveitt að mér líður illa. Fötin klístrast við mann, hárið sleikist niður, og sviði kemur í augun vegna saltsins í svitanum. Í danstímum hitna flestir temmilega og fáir svitadropar myndast, en á mér....úff.. þeir skvettast af mér droparnir í allar áttir, það er ekki hægt að vera nálægt mér!  Ég bara skil þetta ekki. Ég ætla að reyna að komast í botn á þessu. Ein ástæðan getur verið að of heitt sé í salnum, en þá mundu allir svínsvitna. Önnur ástæðan gæti verið að það sé svo mikið puð að koma líkamanum í gang, ég er eins og þungur súmmókarl.

          Ein stelpa hérna í skólanum heitir Ola,, já Ola (sagt eins og hæ á spænsku). Hún er pólsk og hin fínasta stelpa. Ég og Saga köllum hana prumpustelpuna. Ástæðan er einföld, hún er frethólkur af verstu gerð. Það atvik gerðist um daginn í danstíma, að loftið var fúlt af fretfýlu. Þetta var enginn venjuleg lykt, hún var svo fúl að enginn lykt hafði áður fyrirfundist. Græn slykja lyðaðist um í loftinu. Ég vissi að þetta væri hún því ég var alltaf fyrir aftan hana eða við hliðiná henni, og gusaðist sama lyktin á 5mínótna fresti. Frekar súrt að vera svo nálægt henni þvi eflaust hefðu margir geta haldið að þetta væri ég. Danskennarinn sagði meira segja “úfff we have a farter today.”Svolítið skondið. Við ætluðum síðan að lofta út en þá kom svínaklóaksfýla á móti okkar því það er stórt svínabú hérna rétt hjá. Aumingja hún Ola, það er ekki gaman að vera sífretandi súrri lykt. Lyktin er föst við hana, ég held að hún leki út. Hún sagði mér um daginn að hún væri með sveppi í maganum og þyrfti að vera á sérstöku fæði,,, kling í hausinn,, þetta er ástæðan fyrir fúlu sífreti.

Prumpustelpan er lengst til hægri....

          Við höfum búið til flipp lista. Allir Íslendingarnirn í skólanum eru sjálfskráðir á listann hvort sem þeir vilja það eða ekki. Hann vinnur sem nær að gera mestu flippin á flipplistanum. Hann hefur m.a að geyma:

o       Húkka sér far til Köben

o       Ónethæft

o       Stela mat úr eldhúsinu, helst á nóttu til

o       Ónethæft

o       Reyna við einn kennara

o       Stökkva af stökkbrettinu nakinn í sundlaugina

o       Klípa tvo kennara í rassinn

o       Borða 20 epli af eplatrénu.

o       Ónethæft 

Hver verður flippsigurvegarinn, það kemur í ljós í lok desember.

Að lokum fyrir harða barnastjarnaaðdáendur, þá er hérna myndband með Rassmussi Ottensen (sem ég sit sko hliðiná í hádegismat, svo heppin) gera sínar kúnstir. Geggjað!!

http://www.youtube.com/watch?v=4nKrVFMHMUU&eurl=http%3A%2F%2Fpalmithor%2Ebloggar%2Eis%2F

 

 Kveð að sinni Toffa Sveitta....

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 12:09:33 / toffa-dk

Lunatics...

          Magnus Ströllenberg er einn af nemendum skólans hér í Gerlev. Hann sefur yfirleitt á bakinu, vaknar snemma og mætir því yfirleitt fyrstur í morgunmatinn. Hann fær sér yfirleitt kúfulla skál af kornfleksi og ef vel liggur á honum þá fær hann sér tvær. Hann kann svo vel við hljóðið þegar hann briður kornfleksið, það er svo róandi segir hann. Magnús er vanur að byrja daginn á andvarpi en það er líka oftast eina andvarp dagsins. Hann er með ofvaxinn haus miðað við líkamann, en þá fylgir gjarna orðatiltæki: “mikið vit í stórum kolli.” Enda er það satt. Hann maður margra tungna, og er íslenskan að verða ein af þeim. Við Íslendingarnir eigum þann heiður. Hann kann ýmis mis-nytsamleg orð. Það viðkunnalega við hann Magnús er, að ávallt þegar einhver að Íslendingunum labbar framhjá, þá öskrar hann með sinni monotonískri trölla- rámri- röddu og það glymur í öllum skólanum: ” flottur, stór rass, gott að grípa” og ef vel liggur á, þá bætir hann gjarnan nafninu manns við. Hann kann einnig orð kúkalabbanna. T.d “piss, kúkur, prump, píka og tippi” og nýjasta orðið er “ryksuga” en það tengist ekki kúkalabbahópnum. Einnig er Magnús algjör flippari. Það mætti kannski segja að hann væri flippari flipparanna, því stundum þegar við sitjum í mestum makindum í sófanum, grasinu eða jafnvel dýnunni að chilla, þá stekkur Magnús upp og gerir eitthvað flipphopp sem hann var nýbúin að læra. Já, hann Magnús Ströllenberg er hið mesta skinn, hann er einnig með þvottabretti.

Hérna er herra Magnus í sýnu mesta sakleysi.. 

Ég er í leiklistarklúbbi hérna. Við erum internacional team þar sem flestir tala bjagaða ensku, og er Hulkalisous einn meðlimanna(hefur komið áður fyrir í gömlu bloggi). Við ætlum að semja okkar eigið leikrit. Það á að gerast á geðveikarhæli. Það verður meira um líkamsmál heldur en tungumál og í absurd stíl. Fyrir næsta tíma eigum við öll að koma með persónu sem á aðsetur á hælinu. Þannig, ef þið lesendur  hafið einhverja hugmynd um geðveikarhælismann, þá væri það vel þegið.

Ég er samt sem áður komin með eina hugmynd. Það er maður að nafni Mr. Gainsborough (heitir samt í alvörunni Jimmy). Hann er frá Englandi og er 27ára gamall. Hann hefur verið á hælinu í 4 ár. Mr. Gainsborough las yfir sig í háskólanum þegar hann var að læra sagnfræði. Hann er svona bessa-vissir, þ.e þykist vita allt og betur en aðrir(þið kannist kannski við svona persónur úr daglegu lífi). Þar  sem hann er svona ungur og hefur verið lokaður stutt inná hælinu en þykist vita allt, þá er hann gjörsamlega óþolandi. Plús það, að allt sem hann segir er út úr kú og meikar ekkert sens. Mr.Gainsboroug er fullkomnunarsinni. Hárið er vatnsgreitt afturábak, labbar um sperrtur eins og hefðarmanni sæmir, reykir rándýra vindla sem eru í raun gervivindlar því það er bannað að reykja á hælinu, talar niður til fólks og er ávallt fínt klæddur. Hann telur sjálfan sig koma frá miklu hertogafólki (var í rauninni mömmustrákur) og einn af hælismeðlimum hefur fengið þann heiður að vera hans auðmjúki þjónn. Það telst mikill heiður. Mr.Gainsborough á samt ekki alltaf sjö daganna sæla. Stundum ruglast hár hans og fötin hans verða skítug. Hann byrjar að öskra og blóta og felur sig fyrir fólki. Rúsínan í pylsuendanum er svo að hann tekur engu gríni. 

Hér eru svo nokkrar myndir af lífinu...

 

Skólinn minn....

 

hér er Bolak sá bældi (er samt ekkert svo bældur) sem ég nefndi í síðasta bloggi.

 

danska barnastjarnan,, þessi ljóshærði, hann forðast myndavélar

 

Epla trés garðurinn..

 

Íslensku stelpurnar..;)

 

Skólastjórinn, ég, og ævintýrakennarinn (algjör foli)

 

Emil sem gerði ekkert í tvö ár og Hulkalisous að leika konu

 

Ég að rappa í leikriti..

 

önnur rappmynd

 

Pólverjar, Bolek(ekki mjög svo bældi) er til vinstri..

 

Unnur, Bríet, ég og Saga..

 

Kamil(nefndi hann áður í blogginu mínu, sá sem talar latínu) og Dani

 

Júdókenarinn minn(t.h) hann er sko með júdóeyru en það sést ekki á þessari mynd.

 

Kristján heiti, Snædís og Unnur gellur;)

 

Hnakki skólans!!

 

 Sunnudagsmorgun fyrir utan skólann

 

Sunnudagar eru einnig þvottadagar...

 

Ástarlistinn,, allir vilja komast á hann..

 

Pólverjarnir að syngja...

 

Músarstrákurinn (í rauða bolnum)

 

Toffa kveður að sinni...

 

p.s Saga er kvennskörungur að Guðs náð..

Langar ekki að lenda í þessari!

 


» 14 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 20:23:04 / toffa-dk

Hávaði....

Það er rosalegaótrúlegaeinstaklegafrábærlegahrikalega og ofboðslega gaman hérna. ;) Alltaf á fullu og leiðist aldrei. Maturinn líka er hættulega góður. Kannski er ég bara svona gráðug. Krakkarnir eru einstaklega hressir og standa Pólverjarnir uppúr...hehe. Þetta eru algjör tröll maður. Stelpurnar eru þvílíkt massaðar og stórar og strákarnir eins og einhverjir bolar! Ég hélt að ég væri svona í stærra laginu miðað við stelpur, herðabreið og svona... en neiii ég verð eins og eitthvert písl við hliðiná þeim... skrítið að upplifa sig þannig... og ég ætla sko ALDREI aftur í blak við þær. Flestar hafa líka verið í landsliðinu. Trukkar maður...

 Ég verð að taka það fram að ég er einstaklega heppin með herbergisfélaga. Hún heitir Saga. Rosa hress, ofvirk, fyndin og uppátækjasöm. Smellum obbó vel saman. Ég var fyrst með danskri stelpu í herbergi og Saga einnig. Vorum mjög hressar með það. Myndum læra dönskuna og læti. EN nei nei... Eftir fyrsta daginn komu þær til okkar Sögu og spurðum hvort að við vildum skipta um herbergi. Váááá hvað við hljótum að hafa verið leiðinlegar fyrst þær voru svona æstar við að skipta,, geggt diss og bögg á okkur. Nei segi svona.Þær eru víst trúnó vinkonur. En núna erum við mjög fegnar.

Ég og Saga förum alltaf á kvöldin að heimsækja nágranna okkar (eða þeir búa í herberginu á móti okkur) sem eru pólskir. Einn heitir Bolac og er eini strákurinn í dansinum. Hann virkar rosalega bældur, vonlaus og talar í monotone. En svo er hann lúmskt skemmtilegur og alls ekki bældur né vonlaus. Hann leggur sig sko allan fram í dansinum þó að hann sökki. Svo heitir hinn Kamil. Einnig mjög spes. Talar mjög mikið um sagnfræði, hvað Julio Sesar sagði og talar latnesku. Einnig talar hann í kvóta. Þ.e.a.s stundum verður maður að hætta að spurja að einhverju, því hann vill geyma það fyrir næsta dag. Gaman að chilla með þeim.

Hey já.. eitt mjög mikilvægt.... Ég og Saga gerðum Íslands kynningu fyrir allan skólann í morgun. Vorum búnar að standa sveittar yfir þessu seinustu tvö kvöld!!  Og við brilleruðum.. erum búnar standa í ströngu að taka við öllum hrósunum í dag...8) Við sögðum að Íslendingar væru rosalega hávaðsamir og létu mikið fyrir sér fara. Ég og Saga erum einmitt gott dæmi um það. T.d kastaði einn kennarinn í okkur tusku í gær því við töluðum svo hátt. Við höfðum ekki gert okkur grein fyrir því... ég skammaðist mín ekkert neitt smá.. svo segir aðstoðarskólastjórinn alltaf við mig (sit með honum á borði í hádegismat) “Du larmer meget” sem þýðir beint “þú gerir mikinn hávaða.” Héðan í frá mun ég lækka röddina um 20desibil. Einnig sögðum við að Danir hefðu kúgað Íslendinga, meðan þeir réðu yfir okkur, og við hefðum þurft að búa til skó úr verðmætu bókunum okkar og éta síðan skónna okkar.... en við tókum það samt fram að Íslendingar elskuðu Dk í dag. Svo útskýrðu við einnig nöfnin okkar. Ég sagði að nafni mitt þýddi að Þór elskaði mig og því  yrði að giftast rauðhærðum víkingi. Svo benti ég á rauðhærða danska strákinn og sagði að hann væri tilvalinn. Allur hlógu nottla,,, ég hefði kannski átt að sleppa að segja þetta því nú heldur hann að ég sé skotin í sér..obbobbobb..:S   

Komið gott í bili

Over and out

Toffa..


» 13 hafa sagt sína skoðun

06.09.2007 11:52:27 / toffa-dk

Blakstjarna...

Góðan daginn, góðan eftirmiðdag eða gott kvöldið (fer eftir hvaða tíma þið eruð að lesa þetta). Rosa gott að frétta af mér…

Þið munið kannski eftir úr seinasta bloggi um frægu dönsku barnastrjörnuna sem ég er svo heppin að sitja hliðiná! Allavega var ég að tala við nokkrar danskar stelpur úr skólanum, og frægi strákurinn labbaði fram hjá. Þær störðu á eftir honum eins og hann væri hið besta súkkulaði. Ég skaut svo inní: “já er þetta ekki barnastjarnan sem vann eitthvað Eurovision.” Þær æstust allar upp og fóru að segja mér frá. Þær vissu sko ALLT!!... vóóóóó. T.d hvar hann átti heima, að hann ætti kærsustu, að allar stelpur væru skotnar í honum, osfrv. Hann vann greinilega einhverja Eurovision barnakeppni fyrir 6-7 árum þegar hún var haldin fyrst.. Ógurlega spennandi allt saman.  Hann  er víst eitthvað svona undrabarn, því hann er einnig ofvirkur á stóra trapolíninu. Gerði þrefalda skrúfu, tvöfalt heljar með snúningi, baraní inn ofl. og hafði aldrei farið í fimleika áður. Svo var hann einnig að gera e-u brjálaðar æfingar á gólfinu..díses kræst maður..

Hérna er myndband þegar hann vann þessa keppni, dönsku stelpurnar voru alveg óðar í að sýna mér þetta…

http://youtube.com/watch?v=cEdX18P8QoU

 

Við íslensku stelpurnar erum búnar að pæla rosalega mikið í strákunum hérna, og er hver og einn komin með sérstakt gælunafn. T.d er  einn kallaður “Íslendingurinn”, því hann lítur út eins og eðal íslenskur sveitastrákur, rauðhærður og læti. Svo er það “Nebbi,” pólskur jalli af skrítnustu gerð. Nebbin er 1/3 af andlitinu, hann er stokker og byrjar að elta mann ef maður talar við hann. Svo talar hann fáranlega ensku með sterkum pólskum hreim. Svo má nottla ekki gleyma “hunkalisous.” Hann er tékkneskt tröll og svaka heitur. Hann er alltaf með þetta kynþokkafulla glott á sér. Einnig ef maður labbar fram hjá honum eða yrðir á hann, þá horfir hann djúpt í augun á manni með þetta ómótstæðilega glott, að maður fer alveg í kleinu. Hann gerir þetta sko við allar stelpurnar!!! ENNNNNN... það er einn galli, hann er rosalega “dum i hovedet.”Það kemur í ljós þegar hann talar. Þannig að hann breyttist úr “Hunkalisous” í “Hulkalisous.” En ég ætla ekki að fara í frekari málalengingar um þetta. 

Danskennaranir mínir eru góðir. Modern jazz ballet kennarinn minn heitir Pricilla. Hún ljósbrún, með lambakrullur og mjög myndarleg. Erum nuna að gera danskar ballet-tækniæfingar, sem eru mjög svipaðar frá fimleikunum í den.Hún talar með þessari róu,lágu og seiðandi rödd að maður verður rosalega afslappaður í tíma hjá henni. Næstum syfjaður. Svo er það Peter. Hann er einhverskonar freestyle funk kennari, er ekki alveg búin að átta mig á því. Hann er akkurat andstæða Pricillu. Hann er samkynhneigður, alltaf brosandi, með þvílíkar og ýktar hreyfingar og ógeðslega hress.. Geggt gaman í tíma hjá honum!

Já í fyrra kvöld var “volleyball tournament.”Okkur var skipt niður í lið og ég bara með Pólverjum í liði. Allir Pólverjarnir eru með þvílíkt keppnisskap. Þau taka engu sem léttum leik, heldur sem alvöru keppni!! Okey shiiit,,,, ég varð þvílíkt stressuð að byrja að keppa. Ég vildi sko ekki klúðra þessu, þau tóku þetta svo alvarlega og bjuggu til eitthvað þvílíkt heróp. Ég er nú ekkert sú lélegasta í blaki,,, en váááá ég þurfti sko að klúðra í hvert einasta skipti sem boltinn kom að mér. Ég varð svo stressuð um að klúðra þannig að allt misheppnaðist. Fyrst borstu þau til mín og sögðu að þetta væri allt í lagi, en þegar líða fór að leikanna fékk maður ekki vinalegasta brosið. Stelpurnar fóru að reyna kenna mér hvernig ætti að fara að þessu,, eins og ég væri eitthvert smábarn. Djöfull skammaðist ég mín maður.

Komið gott í bili, ætla að fara hoppa á stóra trampólíninu með barnastjörnunni;) hehe

Hilsen

Þórfríður (Er kölluð Toffa núna)


» 13 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 11:27:40 / toffa-dk

God dag...

Jæja þá er Þórfríður mætt til Baunalandsins góða. Allt gott um það að segja. Á föstudagskvöldinu var ég ofurspennt og var í mestu vandræðum hvað ég ætti að taka með mér. Átti ég að taka fjólubláu hettupeysuna eða sleppa henni og taka frekar rauðubuxurnar. Allt var þetta spurning um þyngd töskunnar og notagildi. Voða eitthvað flókið. Ég komst svo að þeirri niðurstöðu að reyna taka sem minnst með mér.Því þar sem eg er íslensk stelpa og á leiðinni til DK þá á eg eflaust eftir að missa það í búðunum á strikinu. jæja, loks þegar ég lagðist á koddann ,þreytt á líkama og sál, eftir erilsaman dag þá var hausinn á 1000.´Fór að ímynda mér hluti og hugsaði óskýrt og órökrétt. Allavega þega klukkan pípti 4 þá fannst ég hafa sofið í 2 mín. Ruddist á fætur, augun bólgin, þrútin og rauð, hárið út í loftið og föl í framan. Kom á flugvöllin, gleymdi flugmiðanum, fuku nokkrir þússarar í það(%&!rklew!), sat á milli hvítlaukssvitalyktandi og skítaandfúlum kínverjum sem gerðu ekki annað en að tala sín og milli og hlægja,,,, spes upplifun. Mætti í köben og fílaði hana strax í botn. Ég tók strax eftir nokkurm Sörenum og Larsenum, einnig sá ég tvo Martina og c.a þrjá Jensena. Ansi gaman.

Skólinn er skemmtilegur. Hann er í sveit. Íslendingarnir eru skemmtilegir, bjóst nú ekki við öðru. Búin að vera í allskonar "get together" leikjum. Voða gaman, hressir krakkar. Ég kynni mig alltaf sem Þórfríður,, er orðin leið á Soffíu nafninu í bili. Enginn getur sagt það, þannig að ég sá strax eftir þessu en ég vil samt ekki breyta því þá veit enginn um hvern sé verið að tala. Er verið að tala um Þórfrrrrksdkfdas eða Soffíu eða er þetta sama manneskjan, voða flókið.Flestir krakkarnir eru frá Póllandi og Tjékklandi.

Eftir hádegismat á þriðjudeginum var okkur skipt í nokkra hópa. Við Íslendingarnir voru látnir í hóp með dönsku krökkunum. Það var bara töluð danska því við sögðum " vi kan godt forsta dansk."Jájá ég skildi svona eitt og eitt en fékk síðan störu út um gluggan. Sveitin var svo falleg og sólin skein glatt. Ég fór svo að ímynda mér danskt sveitalíf og svona þýskt. Sá fyrir mér fólk í fallegum sveitabúning með þjóðlegu ífvafi, sem bjó í bindingshúsum með tvær geitur eða kú fyrir utan.Mikið af osti og norsku sveitabrauði. Eða jafnvel svissneskt sveitlíf, svona eins og í Heiðu. Já ímyndunaraflið fór alveg með mig. Ég ætlaði svo að fara segja íslensku stelpunni sem sat við hliðina á mer frá þessum hugarþönkum mínum. Ég talaði svoldið hátt eins og Íslendingum sæmir, og akkurat þá var kennarinn að tala og ég var sko sussuð niður í botn,, sko allir Danirnir!!!:S mer leið frekar kjánalega og sagði ekki orð það sem eftir var....jæja komið gott í bili

Út og suður

Þórfríður...

p.s okkur var raðað niður í matsalnum og ég sit alltaf hliðiná danskri barnastjörnu. Það er eitthvað voða thing sko að vera barnastjarna í DK.. þannig heppin ég,, liggaliggalá!!


» 9 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 19:41:16 / toffa-dk

Af landi brott

Kæru lesendur

Á laugardagsmorgun mun ég kveðja Ísland og ykkur öll. Ég er á leiðinni til baunalandsins, þ.e.a.s (fyrir þá sem ekki vita hvað það er) Danmörk! Þar mun ég eflaust læra nokkur spor og dillur,,,, hrissta rassinn aðeins. Ekkert nema gott um það að segja. Eflaust mun hægri biceps vöðvinn stækka og stinnast upp, því gróusögur segja vinsælt sé að lyfta bjórglösum að munni sér og taka vænan sopa.. einnig er ekkert nema gott um það að segja líka. Ég mun vera staðsett á sveitastað sem kallast Gerlev, en það er nálægt Slagelse, en það er nálægt Kaupmannahöfn! allt saman mjög nálægt... Ég mun koma heim þegar ketkrókur er kominn til byggða, þannig að það er ekkert fyrir ykkur að örvænta..

sæl að sinni...

út og til baka

Þórfríður Soffía Haraldsdóttir.........


» 5 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill
Blessað sé barnið